Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsmenntaráð

26.11.2007

Starfsmenntaverðlaunin 2007

Starfsmenntaverðlaunin voru afhent í áttunda sinn föstudaginn 23. nóvember síðastliðinn. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en þau hlutu: Icelandair ehf. í flokki fyrirtækja, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum flokki fræðsluaðila og Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir í opnum flokki. Hægt er að skoða myndir frá afhendingunni á heimasíðu Starfsmenntaráðs og ítarlegri umfjöllun um niðurstöður dómnefndar með því að smella hérna.


Kynning á vinningshöfum og starfi því sem þeir eru verðlaunaðir fyrir:

Í flokki fyrirtækja og félagasamtaka:
Icelandair ehf.

  • Í 70 ár sögu félagsins hefur þjálfun og þekking verið grundvallarþáttur í rekstrinum
  • Í starfsmannastefnu er lögð áhersla á öfluga þjálfun og símenntun starfsmanna þar sem hæfileikar starfsmanna fá að njóta sín sem best.
  • Markviss þarfagreining þjálfunar fer fram í öllum deildum félagsins.
  • Fræðsla og þjálfun er í formi námskeiða, fræðslufunda, kennsluhugbúnaðar, fyrirlestra, ráðstefna og vinnubúða.
  • Námsframboð margbreytilegt
  • Endurmenntunarsjóður Icelandair
  • Markaðssetning þjálfunar fer fram á innri vef félagsins
  • Icelandair trúir að fagmennska í þjónustu fáist með vel þjálfuðu starfsfólki.
  • Icelandair lítur á þekkingu og þjálfun sem samkeppnisforskot í aukinni samkeppni til framtíðar.

2007 - mynd 1

2007 - mynd 2

Í flokki skóla og fræðsluaðila:
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

  • Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, MSS, var stofnuð í desember 1997.
  • Aukið aðgengi fullorðinna að námi.
  • Tengiliður hagsmunaaðila á Suðurnesjum.
  • Kvasir, beittu sér fyrir stofnun samtaka símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni.
  • Starfsmenntaverkefnið Markviss.
  • MSS hefur stuðlað að auknu aðgengi íbúa að háskólamenntun.
  • Endurmenntunaráætlun ófaglærðra á Suðurnesjum.
  • Öflug náms- og starfsráðgjöf.
  • Sértakt átak gert til að ná í fullorðna einstaklinga sem eiga við lestrar- og skriftarerfiðleika að glíma. 
  • Greining og ráðgjöf til þeirra sem eiga við lestrar- og skriftarörðugleika að stríða fyrir allt svæðið
  • Þróun á námskeiðum með sérfræðingi fyrir þá aðila sem eiga við þetta vandamál að stríða.
  • MSS hefur staðið fyrir hverskonar námskeiðahaldi.

2007 - mynd 3


Í opnum flokki:
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir

  • Fyrrverandi formaður starfsmannafélagsins Sóknar og fyrrverandi varaformaður Eflingar-stéttarfélags.
  • Leiðarljós: menntun og fræðsla félagsmanna er eitt áhrifaríkasta aflið til að styrkja og efla þá sem minnstu menntun hafa á vinnumarkaðinum og um leið bæta kjör þeirra.
  • Óhrædd að fara nýjar leiðir í fullorðinsfræðslu.
  • Barist fyrir breyttum viðhorfum til starfsmenntunar.
  • Fjölmörg frumkvöðlaverkefni í starfsmenntamálum: 
    Lestrarrannsóknir, félagsliðabrúin, námskeið fyrir starfsfólk mötuneyta, vinnutengd íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn í  ummönnunarstörfum o.fl.
  • Mat á raunfærni, mat á námi, efla íslenskufærni, rjúfa félagslega einangrun .
  • Áhrif á stefnumótun og nýjungar í fullorðinsfræðslu hér á landi sl. áratugi.

2007 - mynd 4


Hér er svo allur hópurinn:
2007 - mynd 5

2007 - mynd 6

2007 - mynd 7


Starfsmenntaverðlaunin

Samskipti

Starfsmenntaráð
Vinnumálastofnun
Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu 
150 Reykjavík

Sími 515 4800
Fax  511 2520
Netfang


Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Starfsmenntaráð